Rapprímur Móra, fíkniefnalögreglan, forvarnir og staðan í vímuefnamálum á Íslandi Þegar geislaplatan Móri kom út árið 2002 fannst mörgum að þar væri á ferðinni skýrmæltasti rappari landsins. Móri veitti mönnum sjaldgæfa innsýn í heim íslenskra fíkniefnasala og tók afdráttarlausa afstöðu með lögleiðingu kannabisefna. Textasmíð hans olli þáttaskilum að þessu leyti. Þótt ýmsir tónlistarmenn hafi fjallað um kannabisneyslu í textum sínum, eins og t.d. hljómsveitin Trúbrot í verkinu Lifun (,,My...