Ég ákvað að fyrst ég er búin að skrifa greinar um nokkur af dýrunum mínum þá yrði ég að skrifa líka um þá merkilegustu af þeim, hana Perlu. Perla var tíkin mín, ég veit ekki allveg hvaða tegund hún var (eithvað íslensk, eitthvað colly) en hún var ljósbrún á litin lítil og nett með stór brún augu. Við fjölskyldan fengum hana þegar hún var þriggja ára gömul, bróðir pabba míns hafði tekið við henni af dýraspítala en þangað kom hún til að vera svæfð eftir að dýraverndunareftirlitið tók hana af...