-Þegar eitthvað kostar 99, 4999, 999 kr. Eða allt sem kostar eitthvað með 99 og maður þarf að bíða eftir þessari einakrónu og ef maður segir að þetta skipti engu þá segir afgreiðslukonan (alltaf kona) að þetta safnist saman. Ójá…..vasarnir alltaf fullir af einakrónum og herbergið líka D: -Þegar maður er að fara að labba yfir götu og sér einn bíl, maður stoppar til þess að bíllinn klessi ekki á mann, en í staðinn fyrir bílinn að halda áfram þá stoppar hann. Ég veit ekki afhverju en það pirrar...