Ég þekki eina stelpu sem entist í smá tíma, hafði þó spilað áður og var “hooked”. En hún hvarf bara síðan, og ekkert til hennar sést síðan. Flestar stelpur fíla þetta af einhverjum ástæðum ekki. Það er eins og sumar séu bara svo skíthræddar um almenningsálitið að þær þora vart að nálgast þetta, svo og tölvuleiki. Aðrar taka þessu opnum örmum. Ein sagði þetta aðspurð: “Oj, nei. Þetta er svo nördalegt.” Það var hálf augljóst að hana langaði til að prófa, en hún bara einfaldlega þorði því ekki.