Sjálfur er ég á barnsaldri, en ég er á því að þú ættir að pæla aðeins í þessu frá öðru sjónarhorni, eins og því að klára skóla alveg fyrst. Eins og hefur verið sagt, þá er ekki skylda að búa í eigin íbúð og hafa gulltryggða vinnu, en það gerir það svo miklu auðveldar. Ef til vill ertu tilbúin núna, en þú verður þá líka tilbúin eftir 4-5 ár. Og eflaust í tryggari málum. Stundum er málið að hlusta dáldið á viskustykkið líka, frekar en aðallega hjartað.