Ég tel mig vera með sæmilega gott langtímaminni og er yfirleitt ekki lengi að átta mig á útskýringum. Hef hins vegar afskaplega lítinn metnað, og það er líka yfirleitt frekar erfitt að fá mig af stað í að gera eitthvað sem krefst fyrirhafnar. Ég er sem sagt meingallaður og húðlatur, en gengur samt vel í skóla.