Hringt var í mig um daginn og mér boðin áskrift að stöð 2, sem hljóðaði þannig að ég borgaði bara fyrir stöð 2 en fengi bíórásina og allar erlendu rásirnar frítt til 5. ágúst sem er allt gott og blessað. Nema hvað að þegar ég kem og ætla að sækja myndlykilinn þá er mér tjáð að ég þurfi að skuldbinda mig í 12 mánuði til að fá þetta tilboð, sem ég vildi ekki gera og spurði hvort ég gæti ekki bara gerst áskrifandi að erlendu rásunum eingöngu, án þess að skuldbinda mig. En nei það er víst ekki...