Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Ég held... (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég held að þú sér slátrari, Sé þig fyrir mér vinna við stóra hakkavél. Ég held að þú eigir orðu, fyrir að sigra innsigluð hjörtu. Hjörtu sem hafa verið læst inn í vel brynjuðu stálboxi sem ömuglegt er að komast inn í. En þú kemst inn, þú hefur tækni sem bræðir stálið, notar verkfæri eins og lygar um traust og umhyggju. Svo grípuru hjörtun, rífur þau úr og hirðir ekkert um tárin eða vonbrigðin í andlitunum, þú vilt bara hjartað. Ég get rekið blóðslóðina að hakkavélinni þar sem situr brosandi...

Hamingjan.... (15 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hamingja Það hefur alltaf verið heitasta óskin mín að vera bara hamingjusöm. Ég hélt að ef maður sætti sig við það sem maður ætti og væri jákvæður þá kæmi þetta bara að sjálfkröfu. Svo ég bara beið. En eins og með allt þarf maður víst að vinna fyrir hamingjunni. Ég setti saman smá lista sem ég held að gæti gert mig hamingjusama. 10 hlutir sem gera mann hamingjusama. 1. ÁST, hún er nauðsynleg. Að fá að elska og vera elskaður af vinum, kunningjum, fjölskyldu og elskuhuga. Að gefa og þyggja. Án...

10 mánaði fyrir að misnota 6 og 8 ára stelpur. (65 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Jæja hvað finnst ykkur um þetta. Það er búið að sanna að maðurinn hafi misnotað þessar tvær litlu stelpur en hann fær bara 10 mánuði. Þekkið þið eitthvað barn sem er 6 ára? Mér sorglegt að senda út þessi skilaboð að það sé ekki meir refsivert að taka sakleysi þessara stelpna og marka þær það sem eftir er. Rétt fyrir neðan þessa grein sem hefur brotið af sér í nokkur skipti í formi þjófnaðar og fjársvika og hún er að fá 18 mánuði. Hún reyndar braut skilorð og er síbrotamanneskja, en samt sko,...

Stúlkur undir lögaldri sýndu undirföt... (214 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 11 mánuðum
“Lögregla var kölluð að skemmtistaðnum Club Opus í Hafnarstræti á laugardagskvöld þar sem borist hafði ábending um að stúlkur undir lögaldri sýndu undirföt í ”Playboy-partíi“ þar sem hafði verið auglýst ”sexý kanínusýning“ og ”fullt hús af flottum Playboy-kanínum“. Tvær stúlkur, sem eru fæddar árið 1987 og verða því 17 ára á árinu, sýndu undirföt en reyndust hafa skriflegt leyfi frá foreldrum og hafði lögregla því ekki frekari afskipti af uppákomunni. Brynjar Már Valdimarsson,...

Bush....? (222 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum
Bush samþykkir þróun nýrra gjöreyðingarvopna Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, hefur samþykkt að veita 7,5 milljónir Bandaríkjadala til þróunar nýrrar kynslóðar gjöreyðingarvopna í Nevada-eyðimörkinni þar sem Bandaríkjamenn hafa þróað kjarnorkuvopn sín. Talsmaður Hvíta hússins, Scott McClellan, sagði í gær að Bush hefði samþykkt 7,5 milljóna Bandaríkjadala fjárveitingu til þróunar svokallaðra byrgjabana, kjarnorkuvopna sem embættismenn segja að muni auka getu bandarískra hermanna til...

Hugi (20 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Mig langaði bara hrósa þeim sem hönnuðu, útfærðu og settu upp heimasíðu huga. Hún er fyrst og fremst bara mjög skemmtileg og það sýnir sig bara helst hversu virk hún er. Í öðru lagi gengur allt bara svo auðveldlega upp og allt mjög aðgengilegt. Hönnunin er líka þannig að maður verður ekkert þreyttur á útlitinu sem getur verið mjög erfitt að uppfylla. Þessi síða er algjör snild. Það eina sem ég myndi vilja sjá er hvernig þessi stig hérna inni eru að virka, því ég er ekkert að skilja út á hvað...

Brotin spegilmynd (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég leit í spegilinn og brosti Falleg, ung, fín og hrein Ég vildi að hann sæi mína kosti fá að vera með honum ein Hann dró mig út í nístings frosti Ég áttaði mig ekki, varð alltof sein Í augum hans brann dýrslegur losti með hulið fyrir vitum mínum heyrðist aðeins vein, lítið kvein Ég leit í spegilinn, í kaldhæðni brosti Eldri, rifin , óhrein

Haltu ástinni (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Haltu vel utan um ástina, en þó ekki of fast því þú gætir kæft hana. Haltu vel undir ástina, því ef þú missir hana brotnar hún. Haltu ástinni heitri, en passaðu þig þó að brenna þig ekki á henni. Viðraðu ástina öðru hvoru, því hún á það til að verða tilbreytingalaus og leiðingjörn. Hleyptu henni frá þér þegar þið þurfið svo þið fáið ekki leið á hvor öðru. Láttu ástina gera æfingar til að styrkja hana. Ekki ætlast til of mikils af ástinni því að hún getur aldrei uppfyllt allar væntingar þína...

Hvað á ég að gera... (25 álit)

í Rómantík fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég kynntist þessum frábæra strák, sætur, skemmtilegur, með sömu áhugamál og ég og við getum talað endalaust saman. Málið er að mér finnst við enn bara vera að kynnast, á svona deit-stigi, enda bara búin að vera hittast í svona viku og hálfa. Hann hinsvegar er kominn með framtíðaráætlun fyrir okkur, farinn að krefjast rosalega mikils af mér og tjá sig um tilfinningar sínar sem mér persónulega finnst bara of snemmt. Hann vill kynna mig fyrir fjölskyldu sinni og bara allan pakkan. Ég er ekki...

Hreynsun (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það byrjar að snúast. Ég opna rykfallin augu eftir langan raunveruleikadvala og lít í kringum mig. Fyrst um sinn er ekkert að sjá nema ryk en með tímanum strík ég hvert kornið af fætur öðru og einblíni inn fortíðinna, sem svo lengi hafði verið fallin bak við lokaða veggi augnanna. Sum kornin eru svo föst, svo djúp og svo köld að ég finn fyrir nístandi sársauka. Minningarnar rista djúpt og hversdagleikinn hylur ekki lengur heldur stráir salt í sárin. Þetta er hreinsun, út með allt sem ég...

Vorið (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Það kom með Lóunni. Feykti burt áhyggjum og opnaði hörtu unga fólksins. Teyngdi saman einmanna sálir í von um bjarta framtíð. Bergmálaði hlátur barnanna og hleypti líf í huga gamla fólksins. Opnaði götur og gerði alla vegi færa. Fæddi afkvæmi og vakti blómin og býflugurnar af löngum dvala. Það færði fólki landsins von og bjartsýni eftir langan vetur. Það er vorið er veldur.

Tómleiki (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þrúgandi tómleikinn helltist yfir hann í koldimmu skammdeginu. Ráfandi í fólksfjöldanum starði hann án þess að sjá, hlustaði án þess að heyra og lífið fór að einkennast af svart-hvítu. Litirnir voru horfnir. Eina hljóðið sem hann skynnjaði var suð . Fegurðin var horfin. Innra með honum óx tómleiki og skilgreindi hann frá öðrum mönnum. Reif upp tilhlökkunina, tilganginum til að lifa og gerði hann að engu. Eftir stóð tómur líkami, líkami án sálar.

ORUSTA LÍFSINS (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Sem barn lagði ég í mina fyrstu orustu. Án þess að vita að hún væri hafin, tók ég of stórt skref inn á víglínu hinna fullorðnu, óhrædd og örugg um að geta flúið inn í skjól æskunar. Fljótlega sá ég að þanngað væri ekki snúið. Ég horfðist í augu óvina minna sem kölluðu sérsveit sína “erfiðlekar”. Fremst í flokki var hin miskunarlausa ást, sem læddist um vit mín og blindaði mig, gerði mig máttlausa fyrir hinum erfiðleikunum. Eftir að ástin hafði yfirgefið mig tók sorgin við. Hún...

Ástin (6 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ástin er eins og nautabaninn, Sem lokkar nautið með rauðu, seyðandi lit og ögrar því að takast á við hann. Þegar nautið hleypur í gegn, stingur ástin það í bakið og særir það blæðandi sárum. Hið ástfangna naut heldur í blindni áfram í von um fullnægingu á hvötum sínum, þar til dauðinn skilur þau að. Ástin stendur eftir með blóðugar hendur og áhorfendur fagna stöðugt.

Lífið (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Augað mitt- allt endalaus leikur. Öskur,óp Verð að passa að særa engan. Gifting,börn, elska á svo margan hátt Auga mitt- vil vera hamingjusöm Hræðsla Vil eiga svo marga. Augað mitt- lífið mitt, hjartað mitt. Öskur,óp Sól, Ánægja,gleði, hamingja, ást, birta Mín sól Tár, blóð, sár Öskur, óp Biturleiki, hatur, sorg, myrkur, þreyta, ótti Lok, lok, lok, sjór, sjór, sjór Hugsun, Framtíð, Tímasprenging.

LANDIÐ MITT (4 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég lifi í einangruðu landi, undarlegum lokuðum heimi. Þar sem aðal nytjavörur eru kretit og ávísunarhefti. Þar sem samfélagið byggist á verslunarferðum og tískubylgjum. Þar sem séttarskiptingin flokkast eftir vörumerkjum. Og í mínu landi geysist unga fólkið með nýjungar á öllum sviðum, óttalaust og sigurvist um bjarta framtíð. Og í mínu landi hræðist fólk hvorki hungursneið, dauða né stríð. Í mínu landi hræðist fólk aðeins synjun úr posanum, lokun stöðvar tvö, gjaldþroti. Ég lifi í...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok