9. Kafli ,,…En það veit enginn afhverju hún gerði það," Roxanne og Nikki sátu saman undir tré niður við vatnið. Roxanne hafði verið að enda við að segja Nikki frá mömmu sinni, ,,Ég hef aldrei verið jafn forvitin! Ég verð að fá að vita afhverju hún gerði það! Hún skrifaði bara í bréfinu að það væri ekki neinum af okkur að kenna, það er að segja mér, pabba, afa, ömmu, langafa, Nönu eða systkinum hennar eða dýranna okkar eða neinum…ég er forvitin! Hún sagði ekkert…pabbi sagði mér að hún hafi...