Umm…ég var einu sinni með hálsbrjósykur í sundi…er það tekið með? var líka með hann í sturtunni áður en ég fór afaní (svo eftir að hafa synt nokkuð mikið missti ég hann út úr mér og hann synti niður á botninn á lauginni =S)
Ahh…dauði…hinn eilífi svefn… En það er betra að geta vaknað aftur og legið í rúminu, og ef ég dey þá get ég aldrei gert það aftur, svo ég ætla að sleppa því næstu 70 árin…
Það er staðreynd að fæstir vinsælir krakkar komast í hraðferð. Hún var í ofurnördabekknum (semsagt bekknum með öllum ofur proffunum). Það er bara ein önnur vinsæl stelpa sem ég veit um að hafi komist í hraðferð, og hún er ekki í ofurnördabekknum, svo þessi stelpa var eina vinsæla stelpan í bekk fullum af nördum =D Eða…þegar ég hugsa um það þá eru 3 aðrar stelpur í bekknum sem eru ekki beint óvinsælar…en þessi stelpa sem ég er búin að vera að tala um þekkti þær ekki neitt fyrsta daginn =D
Hún fór ekki að væla, en leit út eins og hún væri að fara að gera það… Hún átti enga vini í bekknum, allir svo lúðalegir meðan við hana sem var með tonn af meiki, eyeliner, maskara og öllu heila klabbinu =D
Veistu, það er ein stelpa í mínum bekk sem hefur verið ein af þessum ‘vinsælu’ hingað til, kom svo í ofurnördabekkinn og fyrsta daginn hélt ég að hún myndi fara að grenja =D Þið hefðuð átt að sjá svipinn á henni! =D
Hárið þitt er dauðar frumur, frumur eru lífverur svo að hárið þitt er dauðar lífverur, rétt eins og kindur eru lífverur og sumar kindur eru dauðar sem gerir þær að dauðum lífverum. Klipptu af þér hárið og éttu það.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..