Miðjumaðurinn hjá Leeds, Oliver Dacourt neitaði fyrir skömmu að hann væri að hugsa um að skipta til Juventus ef að Leeds skildi ekki ná að komast í Meistaradeild Evrópu á næsta ári. Sögusagnirnar um skiptin hjá Dacourt til Juventus voru oft í íþróttablöðunum í Englandi síðustu vikurnar, en Dacourt hélt áfram að neita þeim og sagði að þetta hafði verið búið til af fjölmiðlunum og ekkert annað. Dacourt sagðist vera mjög ánægður með það að heyra að lið eins og Juventus væri á höttunum eftir sér...