Þetta landsmót var geðveikt, þó að það hafi nú ekki verið mikið frí fyrir mig heldur, ég fór sem sveitarforingi með 16 krakka (og þú röflar yfir 4 ;)) Já, tjaldsvæðið var rosalega flott enda búið að leggja ekkert smá mikla vinnu og peninga í þetta. Vatnasafaríið var, eins og þú segir, ekki nógu drullugt og þar af leiðandi allt of kalt, ég fór nú ekki útí, en var að fylgjast með sveitinni minni og ég barasta hélt að þau myndu deyja úr kulda.. Vatnasafaríið á Úlfljótsvatni er betra :) Það er...