Mig langar til að segja þér sögu. Þetta er ekki saga eins og þær sem þú lest oftast, þessi er eitthvað annað. Þessi saga kemur frá mínu hjarta og er eftir mínu höfði, svo að mér er í raun nokkuð sama hvort að þér líkar hún eða ekki. Það eina sem ég bið um er að þú lesir hana með opnum huga, fordómalaust og umfram allt af fúsum og frjálsum vilja, því það eina sem ég er að gera með skrifunum að þessari sögu er að koma henni frá mér. Hún er einskonar aftöppun, ég er að tappa af þankatanki, svo...