Ég á það til að geyma gemsann minn alveg við græjurnar þegar ég er að hlusta á geisladiska. Þegar maður fær svo sms eða það er hringt þá fer ruglast diskurinn alveg og hoppar stundum til og frá í tíma. Þetta hefur aldrei haft nein alvarleg áhrif fyrr en um daginn. Þá var ég með símann við græjurnar og þetta venjulega gerðist, diskurinn hoppaði fram og aftur í tíma. Svo þegar ég fór að hlusta á diskinn seinna varð ég nokkuð svekkt, því diskurinn virtist hafa skemmst alvarlega. Á köflum lét...