Ég prófaði bretti núna í fyrsta sinn í lok mars í ár og uppgötvaði loks einhvað skemmtilegt útivistarsport sem vert er að stunda og fékk þ.a.l. “snjóbrettasýkina” góðu. Í kjölfarið ákvað ég að fá mér bretti og ákvað að bíða fram á sumar og stefndi svo í bæinn, bar saman búðir,verð og endaði svo á því að kaupa Salomon 450 (163) bretti í Brettabúð Reykjavíkur (frábær þjónusta by the way) á góðum prís a.m.k. við það sem var í gangi á þeim tíma. Þegar ég fór svo að segja “vönu” brettafólki frá...