Tyrkjaránið Þann 16. júlí 1627 réðust um 300 sjóræningjar frá Algeirsborg á Vestmannaeyjar. Vestmannaeyingar, höfðu komið sér upp vörnum við höfnina en sjóræningjarnir sigldu, fram hjá höfninni, suður eftir eynni og gengu á land á Ræningjatanga og komu þannig Eyjamönnum í opna skjöldu. Sjóræningjarnir dvöldu 3 daga í Vestmannaeyjum. Þeir handtóku fólk, bundu á fótum og höndum og geymdu í dönsku verslunarhúsum, drápu þá sem veittu mótspyrnu eða þóttu ekki söluvænir og eltu uppi flóttafólk sem...