Nú ert þú laus við mig, já þetta fór svona að lokum “þú vildir lifa”, opnaðir tíunda bjórinn. Ég geng af stað en minn vegur er villtur í þokum, vörðurnar horfnar og stefnuna ákvarðar skórinn. Að baki mér læðast sem draugar um dimman slóða dagarnir sem eru taldir og koma ekki aftur. Að endingu verður það allt saman minningamóða myndirnar dofna sem hverfandi lífsins kraftur. Og óneitanlega þá minnir það ögn á dauðann þó ekki sé þörf á að afþakka blóm eða krans. Á vegginn sem þú varst að tala...