Einn drengur var svo æstur, Að hann varð að vera næstur, Inni var hann læstur, Í skáp með risa snák. Dauða saga ein, Þú munt sjá rotnuð bein, Er þú kemur heim, Breytist þú í stein. Drengurinn var svo hræddur, Hann mun vera snæddur, Og í líkföt klæddur, Hann iðrast að vera fæddur. Dauða saga ein, Þú munt sjá rotnuð bein, Er þú kemur heim, Breytist þú í stein. Dauða saga ein, Breytist nú í bein, Og gerir engum mein, Breytist ekki í stein. Dauða saga ein, Þú munt sjá rotnuð bein, Er þú kemur...