Umboðsmaður barna í Póllandi sagði í dag að hún væri að rannsaka hvort aðalpersónurnar í bresku barnaþáttunum „Stubbarnir“ (e. Teletubbies) ýti undir samkynhneigð. „Það væri gott fyrir hóp sálfræðinga að ræða við börn um þetta. Við verðum að rannsaka þetta. Ef ýtt hefur verið undir óviðeigandi viðhorf, þá verðum við að bregðast við,“ sagði Ewa Sowinska. Í viðtali sem var birt í fréttatímaritinu Wprost, sem gefið er út vikulega, segir Sowinska að persónan Tinky Winky sé í brennidepli. Talið...