Ég bara verð að leggja orð í belg eftir að hafa lesið ýmsa pósta frá Grími og til Gríms. Það eru hér á spjallinu einn og einn aðili, (Grímur sjálfur þar á meðal), sem eru að hæla Grími og setja hann á einhvern “Hróa Hattar” stall. Tala um að þetta sé sá eini sem gerir eitthvað fyrir kylfinga, þetta sé vinur fátæka mannsins og sé að bjóða betri díla en golfverslanirnar geri. Bull og kjaftæði segi ég. Allir geta, strax á morgun, hafið innfluttning á golfvörum. Þeir geta ákveðið að gerast...