Eftir langa viðveru í krukku hinnar yngri frú Weasley hefur mér, sjálfri Ritu Skeeter, loksins tekist að sleppa burt. Því miður er ég að vinna huldu höfði og lofa því engu til aðdáenda minna um hversu mikil og lengi greinaskrif mín verða. Það er aldrei að vita hvenær stríðshetjan sjálf, Hermione Granger-Weasley, nær mér aftur. En bíðið við, ég hef ekki klárað að telja upp ástæður þess að elskulegir lesendur mínir hafa þurft að bíða í óþreyju eftir enn einni grein frá mér. Ég hef nefnilega...