Ætla loksins að láta verða að því að kaupa mér bíl en veit gjörsamlega ekkert um efnið og datt þannig í hug hvort kapparnir væru ekki til í að aðstoða. Er að hugsa um uppí átta hundruð kall, þarf að vera sparneitinn, helst lág bilanatíðni þar sem ég kann EKKERT að gera við. Er til eitthvað sem heitir bestu kaupin í notuðum bílum í dag eða er þetta fáránleg spurning? Allar ábendingar vel þegnar. Kv Guðni