Ég er að verða alveg vitlaus á sögubókinni sem ég er að læra. Hún heitir Íslands- og mannkynssaga frá upphafi til upplýsingar og er hreinn og beinn viðbjóður. Hún er ekki jafn slæm og íslandssögubækurnar í grunnskóla en þetta kemst þó nokkuð nálægr. Í fyrsta lagi er allt of mikið af ártölum og flóknum nöfnum. Á einni blaðsíðu geta verið svona 10 ártöl og 5 flókin nöfn sem ógerningur er að muna. Í öðru lagi er ekki nógu vel fjallað um hlutina í bókinni. Það er bara hoppað frá eiu í annað og...