Hávamál Gáttir allar áður gangi fram um skoðast skyli, um skyggnast skyli, því að óvíst er að vita hvar óvinir sitja á fleti fyrir. Gefendur heilir! Gestur er inn kominn! hvar skal sitja sjá? Mjög er bráður sá er á bröndum skal síns um freista frama. Elds er þörf þeim er inn er kominn og á kné kalinn. Matar og voða er manni þörf, þeim er hefir um fjall farið. Vatns er þörf þeim er til verðar kemur, þerru og þjóðlaðar, góðs um æðis ef sér geta mætti orðs og endurþögu. Vits er þörf þeim er...