*Kenningin fallin* Pestin var víst komin á undan. Ég tek það fram að þetta eru bara pælingar, engin rannsókn á bakvið eða sannannir, bara grunsemdir mínar. Alveg frá því að fólk fór að tala um hestapestina hefur viss staðreynd setið í mér. Fyrsta skiptið sem ég heyrði um pestina var einni til 2 vikum eftir að eldgosið byrjaði, þá voru hestar farnir að hósta nokkuð nálægt eldgosinu, getur verið eitthvað samhengi þar á milli, smá aska í loftinu sem við verðum ekki vör við en hrjái öndunnarfæri...