Hvaða, hvaða þetta er lífrænn áburður fyrir alla garða og ég tala nú ekki um á umferðareyjurnar, meingunin veldur því að þær hafa mikla þörf fyrir áburðinn. Vistvæn lausn fyrir alla.
Í hestar og menn er það allavega lítið mál ef þau eiga prufuhnakka af þeirri gerð, en þeir eru ekki með Tý en ég veit ekki hvernig það er með Lífland, þar held ég að týr sé seldur, á alltaf eftir að fara og tékka hvort það sé hægt, týr hefur virkað mjög spennandi hnakkur fyrir mér =)
Mér líka, athugglin alveg samstillt, eins held ég að þetta sé með betri andlitsmyndum sem ég man eftir af mér =) Bætt við 24. febrúar 2008 - 13:33 Athygglin átti þetta víst að vera, og já takk =)
Hehe, ekki ein um það, en yfirleitt er það ástæðulaus ótti, hann er voða góður ef ég er rétt hjá, en hann átti að vera ágætis barnahestur þegar ég fékk hann, gjörbreyttist bara þegar hann komst í form =)
Hehe takk, en er ekki full langt að fara úr ölfusi í bæinn? Það er einn í húsinu að skoða klárinn, veit ekki hvort hann hafi en farið á bak, en hann er að spá í að kaupa hann =)
Takk, þetta er einmitt voða gaman, en þetta er einmitt hesturinn sem ég líkti Frey við, fann reyndar engan skildleika þeirra á milli í fljótu bragði en þeir eru úr svipaðri ræktun allavega =)
Já, ég veit það, einn þeirra sem notaði þetta mest á sínum tíma, veit samt ekki hvort hann byrjaði með þetta eða ekki, en það var langafi minn, heyrt margar sögur um það síðan.
Þessi hestur var þjálfaður í að prjóna eftir skipun, ekkert hross sem mér líkar eins vel, rosalegt skap en ekkert mál fyrir mig að ríða honum almennt. Hestur sem verður aldrei seldur og ekki skotinn fyrr en ellin er orðin honum að aldurtilla. Ég endurtek, um skipun er að ræða.
Þessi hestur hefur fullkomið jafnvægi í prjóninu, þjálfaður í þessu, aðalega uppá smalamennskur, ymdislegt hross, mikið skap þýðir ekki að það sé ekki hægt að hemja hrossið..
Sparaðu stóru orðin, þetta er það lang skemmtilegasta hross sem ég hef prufað og nenni ég varla á bak ef ég kemmst ekki á hann. Þessi hestur var þjálfaður í að prjóna eftir skipun, ekkert hross sem mér líkar eins vel, rosalegt skap en ekkert mál fyrir mig að ríða honum almennt. Hestur sem verður aldrei seldur og ekki skotinn fyrr en ellin er orðin honum að aldurtilla.
Aww, flottustu myndirnar sem ég hef séð af geðsjúklingnum mínum =) En já hann slaknar kannski aðeins þegar það verður búið að gera við tennurnar í honum, kannski þær sem spila inní =) Ég held að karlinn hafi áhveðið að kíkja uppí hann útaf því hvernig hann lét þarna meðan við vorum að tala við hann..
Það gerir meira gagn að járna hrossið með stutta hófa að aftan og langa að framan og Þyngja bara með þyngingum þess á milli. Taka bara sem mest af afturhófunum og minnst af framhófum, alvöru járningamenn vita muninn hvernig á að járna alhliðahesta og klárhesta..
Fáðu bara einhverja til að ríða með þér fara framúr og láta þig ná þeim og svona, efla keppnisandann í hrossinu, svo bara passa að hann já fari áfram á réttum gang þegar hraðinn eykst =)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..