Ég á hann ekki.. En þú mátt endilega koma og vera félagskapur í traktornum í sumar ;Þ manni leiðist alltaf svo ofboðslega mikið í heyskapnum.. sami helvítis hringurinn aftur og aftur 4 árið í röð! hehe ;Þ En væri ekki meira gaman að fara rúnt á sexhjólinu? ;Þ
Ég syng sjaldan.. Sérstaklega syng ég næstum aldrei fyrir fólk ;Þ Undantekningin er náttla samt útlendingarnir sem skylja hvort eð ekkert hvað ég segi.. Þ.e. Stjúpmamma og systir.. ;Þ En þegar maður er einn í traktor.. Fer sama helvítis hringinn í steikjandi hita.. Hvað getur maðu annað en sungið um það “að heyskapurinn sé bara í tómu tjóni.. Það rigni bara og rigni?” og það líka að “kindurnar fái bara ekkert að éta í vetur?” Annars þá drap það svoldið tímann.. En systir mín er bara aðeins...
Jámz.. það er stundum lítið um tónlist í sveitinni ;Þ eins erfitt á hestbaki.. ipod gæti virkað á baki en.. Hef ekki prufað það enþá ;Þ Reyndar þá söng systir mín alltaf í heyskapnum.. svo það var alltaf “tónlist” á þeim traktor ;Þ En jámz.. í skólanum þá er nátla oftast einhver tónlist í gangi.. Ekki annað hægt með Sonjal og B2uf á staðnum ;Þ En annars er það eiginlega bara PUSA.. Hehe ;Þ Alltaf jafn ótrúlegt hvað fólk verður háð tónlist ;Þ
Hmmm.. Mest.. Það verður The Presidents of the United States of America… Hlusta aðalega á PUSA þegar ég hef tíma í að raunverulega hlusta á tónlist.. Annars er tónlistin oft í bakgrunn ;Þ
Já.. Það er nánast nauðsýnlegt.. Þegar mér var fleygt 2 sama daginn af sitthvorum hestinum þá fór ég samt beint á þann 3 þegar það bauðst því ég vissi að hann var öruggur ;Þ Reyndar átti hinn hesturinn sem hennti mér að vera öruggur en hann fældist bara svo.. og sá fyrsti var nú bara hann Þokki minn átti að vera nokkuð save með hrekki og slíkt en hann var bitinn undir hökuna og nasamúllinn fór í sárið.. ég nátla vissi ekki af því fyrr en eftir á en skil hann vel að hafa látið nokkuð illa þá ;Þ
*5* Yay! ég sendi líka inn sex lög! og þau eru komin inn ;Þ Sex er náttla frábær tala og allta það ;Þ En þetta kemur ábyggilega þegar Vansi kemst aftur inná.. Hann sér einn um þetta svo hann verður að samþykja þau og setja inn ;Þ
Yay! loksinns fréttir! ;Þ Frábærar fréttir! og ég er meira að segja í fréttum ;Þ Ótrúlegt ;Þ En jámz.. Takk fyrir að muna eftir okkur, og.. Takk fyrir fréttirnar! Var farin að sakna þeirra! ;Þ
Jámz.. Vandarmálið með hann er samt að hann er eiginlega klofinn persónuleiki.. flippar bara allt í einu yfir í einhverja geðvonsku og er yndislegur þar á milli, en ég dýrka hann nú samt.. Líklega aðalega fyrir skapgerðina ;Þ
Jébb.. Góðir skeiðsprettir eru eitt það yndislegasta sem ég veit á klárnum mínum.. fyrir utan harðastökk sprettina.. ;Þ En samt ekkert gaman á lélegum skeiðhestum ;Þ Ég er samt að spá í að fá einhvern til að sýna klárinn fyrir mig.. ég veit ekki hvort það yrði í fimmgangi eða gæðingaskeiði ;Þ Klárinn er nefnilega mjög góður.. Ég bara kunni þetta ekki nógu vel ;Þ
Það er spurning ;Þ Samt gæti verið að ég láni klárinn bara eitthvað í keppni.. Kann þetta ekki alveg nógu vel til að keppa sjálf ;Þ allavega ekki í skeiðinu ;Þ
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..