Úff.. Já.. það er erfitt að segja hvað er vinur og hvað er kunningi, en félagi er auðveldara.. Ég tala um vinnufélaga og en fremur tala ég um drykkjufélaga, fólk sem ég tala jafnvel eingöngu við á fylleríi og eitt sinn átti ég mér geltfélaga ;Þ Svo félagi er einhver sem á eitthvað sameiginlegt með manni, hvort sem það er vinna, áhugamál, drykkja eða jafnvel gelt, í mínum augum, ég á mína kunningja út um allt, það er bæði fólk sem þekkir mig í sjón og já ég skiptist oftast á einhverjum orðum...