Takk, já það var ekki auðvelt að vera nánast byrjandi og fá svona erfiðan hest, en það var smá tímabil þar sem ég réð ekkert við hann og kom grátandi til baka úr hverri tilraun til að fara í reiðtúr, þá var hann bara svo rammkargur, hrekkti mig vægt en nóg þegar ég reyndi að fá hann í reiðtúr. En ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að viðurkenna það fyrir neinum þá, var hrædd um að hesturinn yrði tekinn frá mér, maður sem járnaði fyrir okkur sá svo skelfingarsvipinn á mér þegar ég var spurð...