Jæja ! Þá er komið að því að ljóstra upp mínu stærsta leyndarmáli, þ.e. uppskrift að hinni fullkomnu kokkteilsósu. Eftir áralangar rannsóknir og tilraunir á mönnum (Erfitt að gera tilraunir á dýrum á þessu sviði) þá fékkst niðurstaða fyrir tveimur árum. Langur tími fór í að fikta með ýmis konar stórhættuleg krydd og framandi sósur, en svo kom hugljómun einn daginn. Málið var að góð kokkteilsósa á nebbilega að vera einföld. Allir vita að undirstaðan er tómatsósa og Majones. Trixið er að bæta...