Aðfaranótt þriðjudagsins 16. Januar verður miðnæturopnun í Nexus í tilefni þess að tölvuleikurinn Burning Crusade, World of Warcraft framhaldið/viðbótin kemur út. Á slaginu 12 á miðnætti byrjum við því að selja þennan leik sem svo margir bíða eftir! það verður opið í spilasalnum frá klukkan 8 um kvöldið og kynning þar á WoW borðspilinu og safnkortaspilinu. Fleiri spil á staðnum ef menn vilja prófa Þeir sem vilja tryggja sér eintak af leiknum, hringið í síma 552-9011 eða 552-9012