Um þessar mundir fagnar Breakbeat.is 5 ára afmæli sínu og verður haldið allrækilega upp á áfangann í byrjun næsta mánaðar. Forsmekkurinn verður á fastakvöldi Breakbeat.is á Pravda fimmtudaginn 7. apríl næstkomandi þar sem fastasnúðar Breakbeat.is spila fyrir dansi, ef til vill ásamt óvæntum gestum. Daginn eftir, föstudaginn 8. apríl brestur síðan á með látum. Þá mun enginn annar en Clifford Price, betur þekktur sem Goldie, og eigandi Metalheadz-plötuútgáfunnar goðsagnakenndu spila á...