Í vikunni tilkynnti þýska plötuútgáfan !K7 að huldumaðurinn dularfulli Burial, einn af uppáhalds tónlistarmönnum Breakbeat.is undanfarin ár, myndi sjá um næsta hluta DJ-Kicks seríunnar vinsælu. Suður-Lundúnarbúinn Burial hefur verið þekktur fyrir að halda sig utan sviðsljóssins, en breiðskífur hans “Burial” (2006) og “Untrue” (2007) á Hyperdub, útgáfufyrirtæki Kode9, hafa hlotið gríðarlegt lof og góðar viðtökur um tónlistarheiminn þveran og endilangan. Síðustu DJ-Kicks plötur frá Four Tet,...