Sunnudagskvöldið 4 Júlí og klukkan var 18:00, ferðin að Egilshöllinni til að sjá Metallica var nú hafin og keyrt var frá Vesturbænum.. Ég stóð fyrir utan um stund og beið eftir manneskju og rakst þá á aðra manneskju sem slóst með í för, svo var haldið í röðina, inn var komið og í þann mund voru Mínus að byrja að spila og horfði ég á þá með góðum félagsskap, ég var ekki alveg farinn að kveikja á perunni um að ég væri að fara að upplifa merkasta áfanga lífs míns, fyrir utan að fæðast þ.e.a.s,...