Góðar fregnir en það lítur út fyrir að mæting á þennan Skjálfta verði arfaslök. Kemur svosem ekki á óvart þegar menningin er svona á milli leikja en þetta eru liðin sem eru skráð á Skjálfta: don, fallen, MurK, Ti og síðan sýnist mér einhver marri/Zelda/Mud blanda hugsanlega ætla að mæta. Bara ási skráður úr ice, bara Zelda úr hiv og bara Mud og CorFlame úr s.P. Slappt! Það er vonandi að samkeppnin verði betri í D3 2on2.