Nei, en eins og þú sagðir hét einn konungur Róhans Brego. Enginn virðist vita hvers vegna nafninu á hestinum var breytt úr Hasúfel yfir í Brego. Sumir hafa haldið því fram að nafnið Hasúfel sé of erfitt að bera fram. Ekki get ég nú sagt það, auk þess sem nöfn eins og Asfaloth voru í FOTR. Mín tilgáta, sem enginn hefur minnst á neins staðar á netinu, finnst mér best: Þegar Eomer og Aragorn hittast í fyrsta skipti, lærir Eomer að hér sé erfingi Isildurs á ferðinni, konungborinn maður. Og þegar...