Magnús Lárusson úr Golfklúbbnum Kili sigraði Örn Ævar Hjartarson á lokaholunni í DHL Shootout mótinu sem fram fór á Nesklúbbnum á Seltjarnarnesi í dag. Fyrst léku kylfingarnir tíu sem tóku þátt í mótinu níu holu höggleik um morguninn og eftir hann var raðað upp hverjir léku gegn hverjum. Þátttakendur í mótinu voru þau: Ragnhildur Sigurðardóttir SHOOT- OUT meistari 2003, Ólafur B. Loftsson klúbbmeistari NK 2004, Sigurpáll Geir Sveinsson klúbbmeistari GA 2004, Björgvin Sigurbergsson...