Það var einu sinni maður sem fór til útlanda og gisti á hóteli í nokkra daga. Stelpan í afgreiðslunni sagði honum að það væri eitt herbergi á sömu hæð og herbergið hans sem hann mætti alls ekki fara inn í, hann samþykkti það og stelpan lét hann fá lykilinn sinn. Hann fór upp í herbergið sitt og svaf þar. Næsta kvöld var hann á leið upp í herbergið sitt og gekk fram hjá herberginu sem stelpan hafði talað um. Hann ákvað að kíkja í gegnum skráargatið og sjá hvað væri inni í herberginu. Hann sá...