Myndin þarf að vera 1024x768 eða minna, og ekki stærri en 512kb. Ef þú opnar myndina í Photoshop geturðu opnað gluggann til að breyta stærðinni, sem mig minnir að sé eitthvað þarna uppi og svo Image Size. Photoshop virkar þannig að ef að þú ætlar að breyta stærðinni breytist fjöldi pixela á þessari hlið í samræmi við fjöldann á hinni hliðinni, þannig að myndin þín helst í 3:2. Þá er bara að passa að hvorug hlið sé yfir stærðartakmarkinu.