Úff, ég get ekki sagt að ég öfundi þig. Það er samt til leið út úr þessu eins og öllu öðru. Fyrst foreldrar þínir eru ekki slæmt fólk eins og þú bendir á þá efast ég ekki um að ef þú bara tekur stökkið og sýnir þeim að þú getir bjargað þér komi þau til með að sýna því skilning og þér stuðning… jafnvel þó að það taki smá tíma. Því ekki að flytja bara í höfuðstaðinn og vinna þar fyrir náminu? Leigja herbergi eða litla íbúð (og fá þá jafnvel meðleigjanda) og lifa sparlega í eitt ár eða svo,...