Ég þarf að fá að vita nafn á einum frægum óperusöngvara, ég veit nánast ekkert um hann, en ég dýrkaði hann þegar ég var lítill. Ég á eftir að vita hver það er þegar ég sé nafnið hans skrifað. En hann er mjög frægur og er með svart skegg eins og flestir óperusöngvara, þetta er samt ekki Pavorotti. Skrifið bara nöfn á öllum óperusöngvurum sem þið munið eftir ;)
Ég hvet alla hugara til að taka sig til og skrifa stutta lýsingu á þeim í minningarkubbnum sem vantar lýsingu. Eftirfarandi vantar lýsingu: Barry White Brian jones Buddy Holly Cass Elliot Dusty Springfield Florence Ballard Frank Zappa Gary Thain Harry Nilsson Jaco Pastorius Jimi Hendrix Johnny Cash Karen Carpenter Marc Bolan Maurice Gibb Mick Ronson Ronnie Lane Ronnie VanZant Roy Orbison Sonny Bono Steve Marriott Zal Yanovsky Það væri gott ef fólk myndi tilkynna hér fyrir neðan hverja þeir...
19 ára gekk ég yfir brú sljóttug og óð var sú kú uppá skott ég nú snú en hvað ? jú það var kú sem ól úlf En sú brú sem ég sá á úlf lét ekki fyrir sú sem ég, ég elska RagnarSig, 2005.
Góða kvöldið Ég missti af þættinum í gær og í fyrradag held ég og skil ekkert hvað er í gangi. Var kveikt í kránni og kaffistofunni ? Er Gus kominn aftur ? Afhverju er Max á spítala ?
Eigiði eða vitiði um einhverjar fyrirtaks glósur úr þessari ágætu bók ? Ég þurfti að hraðlesa hana og gafst enginn tími til að búa til eigin glósur. Þetta væri mjög hjálplegt.
Góðan daginn Mig langar að vita skoðun ykkar á einu. Í skólanum mínum fóru allar konurnar heim klukkan 14:08 því þær nenntu ekki að klára vinnudaginn sinn, hinsvegar unnu karlkennararnir enn hörðum höndum og kláruðu sinn vinnudag. Þeir sem voru í tíma hjá kvenkennurum eftir hádegi fengu frí. Og allar stelpurnar sem voru í tímum hjá karlkennurum fengu frí en ekki strákarnir, er það ekki komið útí öfgar þegar stelpunemendum er gefið frí en ekki strákum, sérstaklega þar sem stelpurnar eru ekki...
Góða kvöldið Ég var að spá í einu. Svo virðist sem MSN glugginn sé farinn að taka öll völdin á desktopinu. Glugginn fer alltaf fyrir framan aðra glugga og maður verður að ýta á - til að fá gluggann niður, það er ekki nóg að ýta á Desktop takkann. Þetta getur verið pirrandi þegar maður er vanur öðru, er einhvernvegin hægt að laga þetta ? Eða skiljiði þetta ekki sem ég er að segja ?
Góða kvöldið Maður tekur sífellt eftir því, sérstaklega í bandarískum kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum, þegar fólk er að tala um fimm húsalengjur að húsaraðir. Hvað er ein húsalengja löng ?
Ég sem hélt að íslenskt sjónvarpsefni gæti ekki sokkið dýpra. En núna er farið að leita að keppendum til að taka þátt í raunveruleikasjónvarpsþættinum Ástarfleyið, en svipaðir þættir voru á Skjá einum fyrir ekki svo löngu síðan sem hét Love Cruise, og voru einka leiðinlegir og tilgangslausir. Afhverju eru íslenskir sjónvarpsframleiðendur svona svakalega ófrumlegir ?
Jæja, hvernig fannst ykkur svo Amazing Race í kvöld ? Með hverjum haldiði ? Það vantar ekki allar þessar gömlu Amazing Race týpur. Þá sem allir hata, þá sem rífast mest, hommana, íþróttamennina, ekki-íþróttamennina …
Ég hef eina spurningu um þetta PSP. Það er sagt í upplýsingum um þetta að það er hægt að setja kvikmyndir sem maður á á tölvunni inná þetta og mp3 og allt bara, en það sem ég er að furða mig á, afhverju er verið að selja þá 32mb minniskort með þessu, á maður að koma kvikmyndum og tónlist inná 32mb minniskort ?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..