Minningin um liðna sumardaga, um telpur tvær er leiddust hönd í hönd, hún yljar enn og er það þeirra saga, að traust þá voru bundin vinabönd. Hlægjandi þær hjóluðu um götur, sungu Presley, rokkuðu af snilld, tíndu ber í bauka og berjafötur, flissuðu og léku sér að vild. Þær söltuðu síld og æ skein sól í heiði, í Höfðanum þær áttu unaðsstund. Það sótti sjaldan að þeim nokkur leiði, þær sprelluðu og lærðu leiki og sund. Enn þær eiga sína dótadaga, skemmta sér af lyst sem aldrei fyrr, í...