Þá er nú tími til kominn að maður reyni fyrir sér með grein. Ég ákvað að skella saman i smá lýsingu á stað í heimabrugguðu campaigni sem ég er að stjórna núna. Fyrstu kynni Indigo er borg sem er byggð lóðrétt upp í gríðarstóru sívölu opi á pínulítilli trópískri eyju. Borgin samanstendur af fimm gríðarstórum “platformum” eða “Diskum” sem standa hver ofan á öðrum. Í miðju hvers hrings er svo gríðarstór súla og í henni eru leiðir upp og niður milli hæða. Víðsvegar í beru berginu umhverfis...