Yfir eina helgi dreymdi mig tvo drauma sem hafa vakið upp spurningar hjá mér aðalega vegna hversu raunverulegir þeir voru og áhrifin sem þeir höfðu á mig. Ég vona að einhverjir geti reynt að ráða þá fyrir mig. Fyrri draumurinn: Ég var ófrísk í honum, ég var hamingjusöm og barnið sparkaði í fyrsta sinn í draumnum. Þegar það sparkaði leið mér rosalega vel. Mikil eftivænting og spenna var eftir barninu.. bumban stækkaði og allt gekk vel, svo var fæðingin ég man ekkert hvernig hún gekk fyrir sig...