Tekið af www.mbl.is. Tónleikar rokkarans Iggy Pop, sem verða haldnir 3. maí nk., hafa verið færðir frá Laugardalshöllinni í Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsinu í Tryggvagötu, en þetta kemur fram í tilkynningu frá tónleikahöldurum. Fram kemur að sæti og stæði gildi áfram þrátt fyrir þessa breytingu. Húsið opnar kl 19.30 og Dr. Spock hefur sinn flutning um 20.30. Búast má við mikilli sýningu frá þeim, nýjum búningum og ýmsum óvæntum atburðum, segir í tilkynningu. Iggy og the Stooges koma til...