Í þessari grein ætla ég að reyna að rekja sögu einnar frægustu og áhrifamestu hljómsveitar í heiminum en ég nefni þó kannski ekki alveg allt sem sveitin hefur gert (plötur, smáskífur og fl.) en ætla samt að reyna að nefna það helsta. Löngu áður en flestir sem lesa þetta fæddust komu nokkrir frábærir tónlistarmenn saman í Bretlandi til þess að stofna hljómsveit. Byrjunin 1960-1969 Það var í janúar árið 1963 sem sveitin var stofnuð og núna 42 árum seinna eru þeir enn að semja, spila og skemmta...