Hér birtist þrá Álfsins Legolasar til hafsins. Til sjávar! Þar mávarnir margraddað kliða, Þar vindarnir blása, þar er brimöldur niða. Í vestri, við sjónhring, er sólin að falla. Grátt man ég hafskip, hvort heyrið þið kalla frændur sem undan mér sigldu undan sólu? Skiljast nú hlýt ég við skóga, er mig ólu; farinn er dagur og fækkar brátt árum, einsleg mun ferð mín á úthafsins bárum. Þungar eru öldur sem að Ystu ströndum falla, fagrar eru raddir sem úr Fjarskanum kalla. Eresseu – Álfabyggð mun...