Sry, en mer finnst það svoldið skondið að þú skulir vera með undirskrift úr þessari mynd, sem er meira að segja úr sama atriði og þessi trivia, og giskar samt vitlaust. ekkert illa meint, bara skondið :D
Já það er eiginlega hluti af því sem ég vildi sagt hafa, að þetta snýst miklu meira um ýmindina og að vera Rock Star heldur en að gera góða tónlist. Ég gat bara ekki komið því jafn vel frá mér og þú :P
Þakka hrósið :D En ef þetta er djók hjá þér þá verð ég að segja að þetta var sniðugt hjá þér, að fá alla til að æsast nógu mikið til að segja eittvað um málefni sem skiptir máli og að mynda sér skoðun. Minnir mig á Andy Kaufman ;P En það er gaman að heyra að þér finnst þetta ekki í alvörunni, því að sjálfur er ég mjög stoltur af íslenskunni og Íslandi yfir höfuð, og tek það alltaf nærri mér þegar einhver segir eitthvað neikvætt um málið eða landið. Samt sniðug hugmynd hjá þér að hefja þessa umræðu :)
Þú fyrirgefur en mér finnst þetta fáránleg tillaga. Þessi vandamál með Íslenskuna sem þú nefnir eru kannski hlutir sem að þarf að laga en þetta tungumál okkar er gullfallegt og fornt og það er mikill fjársóður að eiga það, þetta er eitt langlífasta tungumál í heiminum í dag og hefur varla nokkuð breyst á ölllum þessum tíma. þú hefur ekki hugmynd um hvað það er sérstakt. Ég er alveg jafn pirraður og allir aðrir á fólki sem kann ekki að tala rétta íslensku og talar meira enskt slangur sem það...
nei, svarið er að þú og þitt fólk eruð að lifa lífinu eins og the corporations, sony, diesel og öll þessi fyrirtæki segja ykkur hvernig á að lifa. þið eruð bara fjöldaframleidd klón af hvor öðru og það er ógeðslegt. og ekki reyna að halda því fram að ég sé einhver goth hálfviti vegna þess að goth liðið er alveg jafn slæmt. ÞAð er nákvæmlega eins og þið hnakkarnir ða því leiti að það lifir lífinu reynandi að vera öðruvísi til þess að reyna að tilheyra einhverjum hóp. þetta er ógeðslegt...
Ágætis greins, en það sést að þú hefur verið að þýða margt af þessu beint úr ensku. Málfræðin hjá þér sýnir það að þú hefur bara þýtt eitt orð í einu í staðinn fyrir setninguna í heild.
Hérna eru 2 screenshot úr mynd sem ég gerði í náttúrufræði 103 sem breyttist síðan bara í grínmynd. eins og sést á seinni myndinni þá voru tæknibrellurnar alveg rosalegar hjá okkur. http://212.30.203.209/Myndir/Protester's%20stuff/Sexy%20svipur.jpg http://212.30.203.209/Myndir/Protester's%20stuff/isbjorn_aras.jpg Segið mér samt ef linkurinn virkar ekki, ég er að nota þessa upload þjónustu í fyrsta sinn.
Ekki nóg með það að þetta sé heimskulegt, siðlaust, húmorslaust og algerlega snautt af nokkru sem gæti kallast réttlæting til tilveruréttar, þá er þetta líka bara rangt vegna þess að jesús var krossfestur um páskana og það fær enginn gjafir á páskunum fyrir utan eggin en það er ekki verið að tala um þau. Hann fæddist á jólunum og þá fær fólk gjafir. Og mér er sama þótt einhverjir nördar böggi mig yfir því að vera að pirrast á þessu vegna þess að svona jesus/lol myndir eru ömurlegar og ég hata þær.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..