Get selt þér ECT EC50 svartan á 30þús, get líka látið magnara (30W minnir mig) tösku og snúru fylgja með á 45þús í heildina. 662-3745, Pétur. Bætt við 18. október 2010 - 07:20 Sry, þetta er LTD Ec-50, ekki ECT
Í Oldboy þegar… SPOILERS … Lee Woo Jin endurupplifir minninguna af því þegar systir hans framdi sjálfsmorð á brúnni, og hendin á honum “spennir gikkinn” rétt eftir að hann sleppti henni, og svo er skipt það snögglega yfir á það þegar hann skýtur sig í lyftunni að þú hefur ekki tíma til að fatta hvað er að gerast fyrr en því er lokið… Einnig lokaatriðið í þeirri mynd er fullkomið, ógreinilegur endirinn á söguþræðinum í bland við þá fullkomnu ást sem sést á milli Oh Dae-Su og Mi-Do í því...
Ég held að þetta comment hafi alveg rétt á sér þar sem upprunalega manneskjan er að væla yfir því að þurfa að læra íslensku í skóla, þegar greinilegt er að þörf er á því.
Vá, aldrei bjóst ég við því að sjá þetta myndband aftur… og á huga af öllum stöðum. En já, Halldór Áskell er í BNA, og ég efa að hann sé mikill CC aðdáandi, þó ég þekki hann ekki persónulega
Ég vissi það nú, en þegar hann segir að frændi sinn sé með alveg eins tattoo, þá er nú eðlilegt að reikna með því að hann sé að meina tattoo í sömu merkingu og í myndinni…
Nei, skógurinn er úr fókus því hann er í bakgrunninum, mjög sjaldan sem djúpur fókus er notaður í kvikmyndum til þess að bakgrunnurinn sé jafn skýr og það sem er fremst á “sviðinu”
Það er nú reyndar ekki bragðið af Kent sem böggar mig heldur filterinn, þetta triple carbon dæmi í filternum eða hvað það nú heitir veldur mér ógleði, ég veit ekki af hverju, ég fæ bara klígju af því að reykja þær.
Já, ég hef reykt Kent, ég tjái mig sjaldan um hluti sem ég hef ekki reynt sjálfur. Þetta eru án efa ógeðslegustu sígarettur sem ég hef nokkurntímann prófað…
Já vegna þess að fólk var aldrei hrætt við myrkrið fyrr en bíómyndir komu til sögunnar, þessvegna eru til þúsundir drauga- og skrímslasögur frá öllum menningarkimum.
Uch… þú fyrirgefur en ég skil ekki alveg af hverju þú velur þessa aðferð frekar en skurðaðgerð, gætirðu útskýrt það fyrir mér? Þar sem þú segir sjálfur að þetta sé mjög sársaukafullt þá hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að þú velur þessa aðferð frekar en bara venjulegt snip-snip.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..