Jólin ’05 voru sennilega þau skemmtilegustu hingað til en þá fengum við Labrador hvolpinn Týru til okkar. Hún var allt sem við hefðum getað óskað okkur, blíð, góð, félagslynd og alltaf kát. Eftir því sem vikurnar liðu urðum við hændari henni og hún hændari okkur, hún varð fjölskyldumeðlimur. Myndirnar af okkur með henni tala sínu máli, við vorum svo stolt af þessu litla dýri. Hún var ung og lofaði góðu, hún mjög fljót að hlaupa og þótti ekkert skemmtilegra en að sækja bolta og annað dót sem...